Þarna tókst þér að minnka fylgi flokksins, enn frekar.

Það er einhvernvegin svo að Sjálfstæðisflokkurinn eða öllu heldur mörum þingmönnum hans hefur undanfarið tekist að sýna á sér sérstakt sleifarlag og vandræðagang.  Flestir hafa þó haft sig lítið í frammi, sem út af fyrir sig er mjög umhugsunarvert, þegar ástandið kallar á viðbrögð.  Þeir sem hafa hins vegar tjáð sig virðast ráðvilltir og einhvernvegin ekki inn í myndinni. Ég vil nú reyndar undanskilja Pétur Blöndal í því.   Geir kom ekki vel út úr viðtalinu og núna tekst Birgi að líta út eins og að hann sé sérstakur hagsmunagæslumaður auðmanna. Ég hef kosið flokkinn um áratuga skeið en viðurkenni að nú er blái liturinn hjá mér farin að upplitast.  Það versta er að eiga lélegt val þegar litið er til annarra flokka.  Sé ekki nema tvennt í stöðunni.  Annað hvort þurfa nýir flokkar með nýjum áherslum ásamt nýju fólki að sjá dagsins ljós hér á Íslandi, eða að það þarf að hreinsa til í þeim flokkum sem fyrir eru.  Þá erum við ekki aðeins að tala um fólkið í brúnni heldur heilu áhafnirnar.  Þykist vita að það eru margir úti í samfélaginu sem eru til í að taka þjóðarskútuna að sér og sigla henni í höfn. Allavega að koma henni af skerinu.  
mbl.is Vill ekki frysta eignir auðmanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðbjörn Guðbjörnsson

Sama hér - sjálfstæðismaður til 30 ára og í öllum embættum: stjórn sjálfstæðisfélags, fulltrúaráði, kjördæmisráði!

Ég er gjörsamlega ráðvilltur, þegar ég sé svona ummæli - í raun er ég miður mín eftir alla þá vinnu, sem ég hef lagt í þennan flokk!

Guðbjörn Guðbjörnsson, 23.10.2008 kl. 18:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Erlendur Árni Garðarsson

Höfundur

Erlendur Árni Garðarsson
Erlendur Árni Garðarsson
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband